Þetta finnst mér fyndið, vona að ég móðgi samt engan.
(En þið megið alveg kommenta á hvað ég á að gera næstu 3 árin, þið standið ykkur ekkert vel í því....)
Velkominn í þjónustusímann hjá Kleppi.
Ef þú þjáist af…
..þráhyggju, skaltu ýta í sífellu á 1
..ósjálfstæði, skaltu fá einhvern til að ýta á 2
..klofnum persónuleika, skaltu ýta á 3, 4, 5 og 6
..ofsóknarbrjálæði, þá vitum við hver þú ert og hvað þú vilt. Bíddu á
línunni svo við getum rakið samtalið
..ranghugmyndum, veldu 7 og við gefum þér samband við móðurskipið
..þunglyndi, þá skiptir ekki máli á hvaða hnapp þú ýtir - það svarar þér
enginn hvort eð er
..lesblindu, skaltu velja 696969696969
..taugaveiklun, skaltu fitla við ferninginn þar til einhver svarar
..minnisleysi, skaltu velja 8 og segja nafn þitt, kennitölu, símanúmer,
fæðingardag, heimilisfang, skónúmer og fullt nafn móður þinnar
..óákveðni, skaltu skilja eftir skilaboð á eftir tóninum eða á undan tóninum
eða á eftir tóninum. Vinsamlega bíðið eftir tóninum.
..skertu skammtímaminni, veldu 9
..skertu skammtímaminni, veldu 9
..skertu skammtímaminni, veldu 9
..skertu skammtímaminni, veldu 9
5 comments:
Hvar í ósköpunum grófstu þessa vitleysu upp??? Ég brosti nú alveg að þessu :o)
Hvað varðar framtíðina þá veit ég um hentugt húsnæði til sölu á Egilsstöðum ...
á Laufási kannski?
Bíddu við???
ertu enn að hlæja að þessum brandara Védís? Er það ástæðan fyrir að ekkert blogg hefur komið nýlega:)
Já hef legið í gólfinu fyrir framan tölvuna síðastliðna daga :)
Nei fullt af fréttum koma fljótlega,
Post a Comment