Thursday, April 10, 2008

Einhverjir eru að kvarta undan bloggleysi hjá mér en ástæðan fyrir því er afskaplega einföld: Ég hef nákvæmlega ekkert að segja ;)´
Ég lagði jú reyndar land undir fót síðasta föstudag ásamt Lilju Rós og Jóhanni, við keyrðum á Höfn og hittum þar Álfheiði systur og hennar börn, ömmu og afa og öll systkini pabba sem þar búa. Þetta var mjög góð ferð og það var alveg frábært að sjá hvað Árni Jökull og Lilja Rós eru góðir vinir. Eins var líka frábært að sjá hvað Katrín og Kristjana eru alltaf tilbúnar til að hjálpa mér með Jóhann hvort sem ég bið um það eða ekki. Takk stelpur fyrir alla hjálpina :)
Við keyrðum svo heim aftur á sunnudag og þá sá ég hvað ég á duglega stelpu, ég var nefnilega lasin og Lilja Rós gerði sér alveg grein fyrir því og hún sá alfarið um bróður sinn alla leiðina, gaf honum það sem hann vantaði og þess háttar. Ég þurfti ALDREI að stoppa alla þessa leið og geri aðrir betur (sem er reyndar ekki hægt) með tvö lítil börn. Þegar heim kom þá lagðist ég upp í rúm og þessi vika hefur farið í slappleika og verkefnavinnu. Verkefnum var skilað í dag og nú hefst bara prófalestur strax eftir helgi.

Ég er ein heima alla helgina (ein heima = ég og börnin), þannig að ef einhver vill bjóða okkur í kaffi eða bjóða sér í kaffi til mín endilega látið mig vita :)

6 comments:

Anonymous said...

Gaman að sjá nýtt blogg. Því miður kemst ég ekki í kaffi til þín núna, það verður bara að bíða betri tíma hehehe
Elfa

Anonymous said...

Kanski kem ég bara í kaffi til þín, ertu ekki örugglega með "afganga" frá tengdó??? ha ha ha. Verðum í bandi allavegana, kanski förum við í sveitina með Hörpu vinkonu annað hvort laugardag eða sunnudag...

Ameríkufari segir fréttir said...

Það var svo gaman að sjá ykkur og ég mat mikils að hafa geta eytt tíma með ykkur því það gerist svo sjaldan.
Vonandi hittumst við áður en við fljúgum út.
Gangi þér vel, Svanfríður

Álfheiður said...

Þú ert alltaf velkomin í kaffi :o)
Takk fyrir helgina!

Anonymous said...

Alltaf velkomin í Bøgehaven 17;o)

Med venlig hilsen,
Hædhrrrún

Anonymous said...

alltaf velomin til mín líka.... vonandi lídur thér betur!