Wednesday, June 21, 2006

Fréttir

Jæja er ekki komin tími á að setja eitthvað hér inn?
Hér var haldin afmælisveisla í tilefni þriggja ára afmælis Lilju Rósar síðastliðinn sunnudag og fór hún bara nokkuð vel fram. Ég gerðist nú svo djörf að panta afmælisköku, nennti ekki að baka hana sjálf og skammast mín ekkert fyrir það, heimavinnandi húsmóðirinn.
Jóhann ákvað svo að fá sína fyrstu tönn á sjálfan kvenréttindadaginn (heitir hann það ekki annars), gott hjá honum.

Svo er komið að aðalfréttinni.
Ég fór í vinnuna mína í dag og sagði upp, já þið lásuð rétt, ég sagði upp.
Ég er að fara í viðskiptafræði í Háskóla Íslands í haust og ætla mér að útskrifast þaðan með BS próf eftir þrjú ár. Uppsögnin gekk vel og best var að yfirmaður minn vill endilega að ég hafi samband við hann í haust þegar ég er byrjuð og vinni aðeins með skólanum ef ég treysti mér til. Eru það ekki fín meðmæli frá honum að vilja ekki missa mig alveg? Það held ég nú.

En þetta er nóg í bili, kallinn var að koma heim úr vinnu og situr og snæðir kaldan kvöldverð. Best að spjalla við hann.

Hafið það gott þangað til næst

7 comments:

Anonymous said...

vá! flott hjá þér að skella þér í viðskiptafræðina!!

Anonymous said...

Dugleg stelpa! Er stolt af þér.

Anonymous said...

Frábaert ad heyra!! Gangi thér vel!
//Ellen

Anonymous said...

Er þetta ekki bara fínt dæmi að læra meira um viðskipti, alltaf búin að vera vinna við það.

p.s. skil hann vel, ekkert gaman þegar þú segir upp ;)

Ameríkufari segir fréttir said...

Dugleg stelpa. Oft hef ég verið ánægð með þig en sjaldan eins og nú:)því þetta á örugglega vel við þig.

Anonymous said...

Gott að þú lést verða af þessu kella mín, þú verður flott á skólabekknum næsta vetur!
Kveðja Heiðrún - sem er á leiðinni í útilegu um helgina í góða veðrinu...

Anonymous said...

frábært hjá þér, þessi þrjú ár verða örugglega mjög skemmtileg hjá þér og ekki slæmt að fá svona meðmæli.

Kv. Ragnhildur